13.2.2009 | 17:47
Verkefni fyrir búsáhaldabyltinguna
Það væri verðugt verkefni fyrir Hörð Torfason og Raddir fólksins að tromma á næstu vikum fyrir utan Bandaríkjanna, Finnlands, Bretlands, Þýskalands, Svíþjóðar, Frakklands og Hollands og kyrja ,,vanhæfir sendiherrar, vænhæfar þjóðir".
Í stuttu máli sagt þá á búáhaldabyltingin að tromma þetta lið úr landi. Það er ekki hlutverk sendiherra að hlutast til um innanríkismál og þá sjálfsögðu stefnu að Íslendingar nýti náttúruauðlindir sínar á sjálfbæran hátt. Hvað vill þetta lið upp á dekk? Flestir með allt niður um sig. Svíar að hefja raforkuvinnslu í kjarnorkuverum á nýjan leik og ekki er ástandið betra í umhverfismálunum betra hjá hinum þjóðunum.
Sendiherrar mótmæla hvalveiðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já þetta er alveg ótrúleg, sjá ekki bjálkann fyrir flísinni...
Margrét Elín Arnarsdóttir, 13.2.2009 kl. 19:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.